Mánudaginn 29. apríl kl. 15-17 mun listamaðurinn Jóhann S. Vilhjálmsson taka á móti gestum og segja frá verkum sínum á sýningunni Rituðum myndum en mánudagurinn er jafnframt lokadagur sýningarinnar.
Jóhann vinnur verk sín á pappír og notar til þess ýmiss konar blek og liti en síðustu árin hafa verkin farið að líkjast æ meir síðum úr fallega lýstum miðaldahandritum. Þá má segja að verkin sameini myndskreyti, til dæmis drekaflúr og leturdálka á lituðum bakgrunni. Þegar betur er að gáð sjáum við hins vegar að það sem virðist letur er ekki á neinu þekktu ritmáli, heldur eru myndirnar til þess fallnar að við lesum í þær eitthvað sem kannski verður ekki komið í orð – að við lesum með ímyndunaraflinu.
Sýningarstjórar eru Erling T. V. Klingenberg og Jón Proppé.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.