Listamannsspjall – Hallgerður Hallgrímsdóttir

Sunnudaginn 6. febrúar kl. 14 fer fram listamannsspjall Hallgerðar Hallgrímsdóttur þar sem hún mun segja frá verkum sínum og sýningunni Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun – III. hluti, sem nú stendur yfir í Sverrissal Hafnarborgar. Sýningarstjóri er Unnar Örn Auðarson.

Á sýningunni beinir Hallgerður sjónum sínum að ljósmyndatækninni sem miðli, þar sem hún skoðar bæði veruleikann í ljósmyndinni sem og veruleika ljósmyndarinnar sjálfrar. Verkin eru unnin með ólíka möguleika miðilsins í huga sem felast ekki bara í því að fanga viðfangsefnið í fallegri birtu, heldur líka öllu sem gerist í myndavélinni, í myrkraherberginu og, nú nýlega, í stafrænni vinnslu. Þá getur myndin farið í óteljandi ólíkar áttir á hverju stigi í ferlinu, enda er engin ein rétt leið til að búa til ljósmynd.

Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2022. Sýningin hlaut styrk frá Myndstef.