Hádegistónleikar – Vera Hjördís Matsdóttir

Þriðjudaginn 1. október kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg en að þessu sinni verður Vera Hjördís Matsdóttir gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Yfirskrift tónleikanna er „Ást og lygar“ en á efnisskránni eru ástríðufullar aríur úr óperum eftir Mozart, Donizetti, Puccini og Gounod.

Vera Hjördís Matsdóttir, sópran, lauk meistaragráðu í klassískum söng við Konunglega tónlistarháskólann í Haag fyrr á þessu ári. Þar áður útskrifaðist hún með bakkalárgráðu við Listaháskóla Íslands vorið 2020. Kennarar hennar voru Hanna Dóra Sturludóttir, Kristinn Sigmundsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Þóra Einarsdóttir. Við útskrift frá Listaháskólanum var Vera valin sem styrkhafi úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen. Hún var einnig í hópi þeirra sextán afburðanámsmanna sem hlutu námsstyrk frá Landsbankanum vorið 2023.

Vera kemur reglulega fram sem einsöngvari hér á landi en meðal nýlegra verkefna má nefna þátttöku í tónleikaröðinni Velkomin heim og framkomu með Lorelei Collective á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Vera fór einnig með aðalhlutverkið í nýrri íslenskri óperu eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur, SKJÓTA, sem sýnd var í Ásmundarsal, auk þess sem hún kom fram sem einsöngvari í flutningi á Oratorio de Noël eftir Saint-Saëns í Seltjarnarneskirkju undir hljómsveitarstjórn Stefans Sands. Nú í vetur mun Vera svo fara með hlutverk Barbarínu í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart í uppsetningu Kammeróperunnar í samstarfi við Borgarleikhúsið. Vera fer einnig með sama hlutverk í óperunni Hliðarspori, sem samin er af Þórunni Guðmundsdóttur.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.