Hádegistónleikar – Kristín Sveinsdóttir

Þriðjudaginn 5. nóvember kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg en að þessu sinni verður Kristín Sveinsdóttir, mezzósópran, gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Þá er yfirskrift tónleikanna „Buxnaaríur og pilsasöngur“ en saman munu Kristín og Antonía flytja tónsmíðar eftir Strauss, Händel og Mozart.

Kristín Sveinsdóttir, mezzósópran, lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík haustið 2013 undir leiðsögn Hörpu Harðardóttur en á Íslandi hefur Kristín einnig sótt söngtíma til Sigríðar Ellu Magnúsdóttur. Eftir að hafa tekið þátt í tónleikaferðalagi til að fylgja eftir plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Biophilia, hóf Kristín nám í klassískum söng við Tónlistarháskólann í Vínarborg árið 2014. Þá tók Kristín sér rúmlega ársleyfi frá skólanum í Vín til að syngja við óperustúdíóið Accademia del Teatro alla Scala í Mílanó, þar sem hún kom fram sem einsöngvari á ýmsum tónleikum og óperuuppfærslum, meðal annars sem önnur dama í Töfraflautunni eftir Mozart undir stjórn Adam Fisher, á árlegum jólatónleikum La Scala undir stjórn Franz Welser Möst og í uppfærslu á Der Rosenkavalier eftir Strauss undir stjórn Zubin Mehta. Kristín sneri svo aftur til Vínarborgar eftir dvölina í Mílanó til þess að ljúka námi sínu og kom reglulega fram sem einsöngvari í skólaverkefnum og öðrum viðburðum.

Kristín hefur verið búsett á Íslandi frá 2020 og er ein af stofnendum Kammeróperunnar. Þá starfar hún sem forskóla- og söngkennari í Tónskóla Sigursveins, er meðlimur í Kammerkvartettinum og kemur reglulega fram sem einsöngvari við ýmis tilefni, svo sem á tónleikum og í óperusýningum. Á komandi leikári mun Kristín svo syngja hlutverk Cherubino í Brúðkaupi Fígarós í samstarfsverkefni Kammeróperunnar og Borgarleikhússins, auk þess að koma fram sem einsöngvari í Óperuveislu með Ólafi Kjartani og Sinfóníuhljómsveit Íslands í apríl 2025.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.