Á mínu máli – leiðsögn á ensku um sýningar safnsins

Mánudaginn 5. ágúst kl. 14 bjóðum við ykkur velkomin á leiðsögn á ensku um yfirstandandi sýningar safnsins: Í tíma og ótíma, þar sem sjónum er beint að margvíslegum birtingarmyndum tímans í verkum ‏listakvennanna Örnu Óttarsdóttur, Leslie Roberts og Amy Brener, og Kassíópeiu, einkasýningu Guðnýjar Guðmundsdóttur í Sverrissal safnsins. Leiðsögnin er hluti af viðburðaröðinni Á mínu máli sem miðar að því að bjóða gesti velkomna í safnið á ólíkum tungumálum og auka þannig aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg. Viðburðaröðin er styrkt af safnasjóði.

Á sýningunni Í tíma og ótíma má sjá hvernig hugmyndir um tíma fléttast á mismunandi hátt inn í verk listakvennanna þriggja, þeirra Örnu Óttarsdóttur, Leslie Roberts og Amy Brener, þar sem segja má að þær safni ummerkjum um samtíma okkar og færi yfir í á‏‏þreifanlegt form með persónulegri túlkun og ólíkum aðferðum. Þá er að finna vissan léttleika og húmor í verkunum – eitthvað í ætt við kæruleysi – sem mætti túlka sem viðleitni til að gangast við fáránleika samtímans. Ef til vill mætti lesa verk þeirra sem tilraun til að stöðva tímann eða jafnvel að stíga út úr samtímanum.

Á sýningu Guðnýjar Guðmundsdóttur, Kassíópeiu, eru sýnd verk sem listakonan vinnur á pappír og í leir, auk vídeóverka. Þá speglar hún sjálfa sig í verkunum og dregur fram pælingar um sært egó, sjálfsupphafningu og sjálfselsku, þar sem innblástur er sóttur í gríska goðafræði. Áhorfandinn stígur inn í óræðan heim, þar sem finna má titla á ólíkum tungumálum, áletranir og fjölda vísana í verur og fyrirbæri úr hinum klassíska heimi. Þá færa verkin okkur fram og til baka í tíma og fá okkur til að velta vöngum yfir innri tengingum, þar sem þau mynda eins konar stjörnumerki eða þyrpingu sem býður ef til vill upp á fleiri spurningar en svör.

Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.