Hafnarborg merki

Hafnarborg

05.09.25 | 18:00 - 19:00

Síðdegistónar – Kvartett Söru Magnúsdóttur

Salur
Hafnarborg

Föstudaginn 5. september kl. 18 mun Kvartett Söru Magnúsdóttur, orgelleikara, koma fram á Síðdegistónum í Hafnarborg. Þá gaf Sara út sína fyrstu plötu, A Place to Bloom, þann 22. ágúst síðastliðinn, með frumsaminni tónlist. Á tónleikunum mun kvartettinn flytja nýju plötuna í heild sinni, ásamt vel völdum djassslögurum.

Sara Magnúsdóttir hefur verið virk á djasssenunni í Reykjavík um árabil. Hún hefur stundað tónlistarnám í Bandaríkjunum síðustu ár og býr nú í New York en kemur reglulega til Íslands að spila á tónleikum. Með henni leika Jóel Pálsson á saxófón, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Einar Scheving á trommur. Allir hafa þeir verið atkvæðamiklir í íslensku tónlistarlífi, gefið út fjölmargar plötur og unnið til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir sínar útgáfur.

Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.

Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn