Afstæði

Jón Axel Björnsson

Málverk og vatnslitamyndir Jóns Axels Björnssonar dansa á litríkum mörkum hins sýnilega og ósýnilega, á milli forma sem birta okkur hluti og fanga huglægt ástand. Verkin einkennast af stórum einlita flötum sem skipta upp myndfletinum og fljóta á yfirborði hans. Víða skjóta mannsmyndir upp kollinum á leið út eða inn við jaðar myndrammans. Myndheimurinn er samhæfður – litafletir, fígúrur og hlutir skapa spennu innan rammans og gefa til kynna að í verkunum búi saga.

Jón Axel er fæddur 1956 í Reykjavík. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1975–1979. Jón er starfandi myndlistarmaður og hefur haldið fjölda sýninga á Íslandi og erlendis. Auk myndlistarinnar vann Jón Axel við kennslu í MHÍ og LHÍ 1985–1999 og Myndlistaskólanum í Reykjavík 1995-2000. Þá vann Jón Axel við leikmyndahönnun 2002–2006 hjá Borgarleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu og Leikfélagi Akureyrar. Jón Axel hefur einnig starfað með arkitektum að ýmsum verkefnum.