Veðurstofa – málþing í tengslum við sýninguna Allra veðra von

Fimmtudagskvöldið 4. október kl. 20 verður haldið málþing í Hafnarborg í tengslum við sýninguna Allra veðra von.

Sýningin fjallar um samband mannsins við veður. Eftir eitt versta sumar í manna minnum á suðversturhorni landsins og öfga í veðri um heim allan er þetta viðfangsefni ofarlega í hugum manna. Veðrið hefur áhrif á okkur; umhverfi okkar og andlega líðan og nú á tímum hnattrænnar hlýnunar og breytinga á veðurkerfum heimsins er það þungur biti að kyngja að við sjálf berum ábyrgð á því að miklu leyti. Fimm listakonur nálgast viðfangsefnið hver með sínum hætti og sækja föng í þjóðfræðilegar og mannfræðilegar heimildir, fornar sagnir, loftslagsvísindi, upplifanir og atburði líðandi stundar þar sem kjarninn er alltaf manneskjan frammi fyrir veðri.

Allra veðra von er áttunda sýningin í haustsýningaröð Hafnarborgar, þar sem hugmynd sýningarstjóra er valin úr innsendum tillögum. Á sýningunni eru verk eftir Höllu Birgisdóttur, Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Ragnheiði Maísól Sturludóttur, Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur og Steinunni Lilju Emilsdóttur. Sýningarstjóri sýningarinnar er Marta Sigríður Pétursdóttir.

Þátttakendur málþingsins eru Eiríkur Valdimarsson, þjóðfræðingur, Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur, og Marta Sigríður Pétursdóttir, sýningarstjóri. Fundarstjóri er Marteinn Sindri Jónsson, heimspekingur og aðjúnkt við hönnunar og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Listakonurnar taka einnig þátt í umræðum.

 

Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:

  1. Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, býður gesti velkomna.
  2. Marta Sigríður Pétursdóttir segir frá sýningunni, aðdraganda hennar og samræðu við listamenn.
  3. Marteinn Sindri Jónsson, heimspekingur og aðjúnkt við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, kynnir þáttakendur.
  4. Myndir veðursins – Haraldur Ólafsson
  5. „…og það stóð auðvitað heima, spáin rættist“: Hæfileikinn að gá til veðurs Eiríkur Valdimarsson
  6. Marteinn Sindri Jónsson segir frá hugleiðingum sínum um samband manneskju og veðurs út fra samtölum við listakonur sýningarinnar.
  7. Umræður.
  8. Léttar veitingar og spjall.

 

Þátttakendur:

Eiríkur Valdimarsson, þjóðfræðingur, er fæddur árið 1982 í Skagafirði og bjó þar fram á unglingsár uns hann söðlaði um, fór í Menntaskólann á Akureyri og síðar í þjóðfræðinám við HÍ í Reykjavík. Hann lauk þar BA-gráðu árið 2006 og MA-gráðu í þjóðfræði árið 2010. Viðfangsefni MA-rannsóknar hans voru alþýðulegar veðurspár Íslendinga fyrr og nú. Í þeirri rannsókn tók hann fjöldann allan af viðtölum við veðurglöggt fólk og kafaði í fornar heimildir í leit sinni að hæfileikanum að spá fyrir um veðrið.

Eftir háskólanám vann Eiríkur sem stundakennari við HÍ í þjóðfræði í nokkur ár. En árið 2013 fluttist hann norður á Strandir, til Hólmavíkur með fjölskyldu sína, þar sem hann býr í dag og starfar við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, auk þess að sinna ýmsum fræðastörfum því samhliða.

Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur, er fæddur í Reykjavík 1965. Hann lauk stúdentsprófi í MH 1984 og síðar sveins- og meistaraprófum í stærðfræði, eðlisfræði og veðurfræði við Háskólann í Osló og doktorsprófi við Háskólann í Toulouse í Frakklandi. Haraldur var um hríð við ýmis sérfræðistörf á Veðurstofu Íslands, var prófessor við Háskólann í Björgvin í Noregi og stjórnaði Björgvinjarskólanum í veðurfræði um skeið en er nú prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands. Hann samdi og kynnti veðurspár fyrir sjónvarp í tvo áratugi. Haraldur hefur sent frá sér á alþjóðlegum vettvangi á annað hundrað rit um veðurfræði og skyld fög, s.s. mengun, fok, vatn og snjó og setið í ýmsum stjórnum á sérsviði sínu. Hann hefur átt hlut að stofnun tveggja fyrirtækja í veðurfræði.

Marta Sigríður Pétursdóttir, sýningarstjóri, útskrifaðist með BA-gráðu í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands 2008, MA-gráðu í menningarfræði frá Goldsmiths College í London 2011 og MA í kynjafræði frá School of Oriental and African Studies í London 2014. Hún hefur fengist við margvísleg skrif tengd myndlist, bókmenntum, kvikmyndum og menningu.

Marteinn Sindri Jónsson, heimspekingur og aðjúnkt við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, starfar sem aðjúnkt á fræðasviði hönnunar og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands auk þess að sinna kennslu við myndlistardeild LHÍ. Hann hefur fengist við dagskrárgerð fyrir útvarp um langt skeið auk þess að fást við listsköpun á vettvangi tónlistar. Hann lauk meistaraprófi í heimspeki við Háskóla Íslands árið 2017 og hefur á vettvangi heimspeki og fræða sérstaklega beint sjónum sínum að hugmyndasögu og stjórnmálum, verufræði, fagurfræði og miðlun.