Úthverfi eða bæjarbragur?

Samtal um framtíðaruppbyggingu í Hafnarfirði. Hrafnkell Proppé svæðisskipulagsstjóri kynnir Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040 sem var samþykkt 2015 og starfshópur á vegum Hafnarfjarðarbæjar kynnir nýútkomna skýrslu um möguleika uppbyggingar í Hafnarfirði. Allir íbúar og áhugafólk um framtíð Hafnarfjarðar hvattir til að mæta.

Þessi viðburður er í tengslum við opnu vinnustofuna Þinn staður – Okkar bær sem Hafnarborg ásamt Umhverfis og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðar og Markaðsstofu Hafnarfjarðar hafa staðið sameiginlega að. En þar verða kynnt helstu framkvæmdir og skipulagsverkefni í miðbæ Hafnarfjarðar og nágrenni hans. Skipulag og hönnun umhverfis skiptir okkur öll miklu máli og getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir það mannlíf sem ætlað er að dafna á hverjum stað. Mikilvægt er að sem flestar raddir fái að hljóma í skipulagsvinnunni og tekið sé tillit til óska þeirra sem eiga að gæða hið byggða umhverfi lífi með nærveru sinni. Í þessari vinnustofu gefst almenningi tækifæri til að ræða áherslur skipulagsyfirvalda og koma með ábendingar um það sem vel er gert og hvað má bæta. Sýningarstjóri er Magnea Guðmundsdóttir, arkítekt.
 
Vinnustofan er hluti af Hönnunarmars 2016.