Sýningarstjóraspjall – Ólöf K. Sigurðardóttir

Í sölum Hafnarborgar stendur nú yfir sýningin Á eintali við tilveruna sem sýnir verk sem listmálarinn Eiríkur Smith vann á árunum 1983 -2008.

Ólöf K. Sigurðardóttir fyrrverandi forstöðumaður Hafnarborgar er sýningarstjóri sýningarinnar og verður hún með sýningarstjóraspjall sunnudaginn 29. nóvember kl. 15.

Á sýningunni er leitast við að kynna þetta síðasta tímabil á ferli listamannsins. Þar má sjá bæði hlutbundin og óhlutbundin verk þar sem hann gerir tilraunir með form og liti. Verkin bera það með sér að hér er þroskaður listamaður á ferð þó jafnframt megi sjá að Eiríkur heldur áfram þeirri listrænu leit sem ætíð hefur einkennt hann.

Á eintali við tilveruna er fimmta og síðasta sýningin í sýningarröð sem Hafnarborg hefur staðið fyrir síðan árið 2010 þar sem kynnt hafa verið ólík tímabil á löngum og fjölþættum ferli Eiríks og er sýningunni fylgt úr hlaði með útgáfu veglegrar sýningarskrár sem gerir skil öllum fimm sýningunum og ferli listamannsins Eiríks Smith.

Eftir Eirík liggur gríðarlegur fjöldi verka og eru rúmlega 400 verk varðveitt í Hafnarborg en listamaðurinn færði safninu veglega listaverkagjöf árið 1990. Jafnt og þétt hefur verið bætt við safneignina með það að markmiði að í Hafnarborg sé varðveitt safn verka sem gefur góða yfirsýn yfir feril listamannsins.

Nánar um sýninguna hér: