Samtal um Tilraun – leir og fleira

Fimmtudagskvöldið 22. september kl. 20 verður haldið málþing um sýninguna Tilraun leir og fleira. Að þessu tilefni verða sýningar Hafnarborgar opnar á milli kl. 19.00 – 21.30 sama kvöld.

Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:

  • Sýningarstjórar segja frá sýningunni, hugmyndarvinnu og útkomu.
  • Garðar Eyjólfsson, hönnuður, og Sigurður Guðmundsson, viðskiptafræðingur, fjalla um verk sitt “Kalekur”.
  • Bjarnheiður Jóhannsdóttir segir frá verkinu „Bráðnuð jarðefni – Leit að glerungi úr íslenskum jarðefnum“ sem hún vann í samstarfi við Brynjar Sigurðarson og Veroniku Sedlmair.

Sýningin Tilraun – leir og fleira er samtal sjónlista við leir þar sem vísað er í ólíka heima iðnaðar, lista, nytjalista og hönnunar. Þátttakendur sýningarinnar koma úr ólíkum starfstéttum sjónlista. Þeir nota allir leir í verkum sínum en voru gefin mismunandi orð til að vinna þau útfrá. Útkoman eru annarsvegar fullgerð verk á meðan önnur sýna rannsókn eða vinnuaðferð.

Sýnendur eru: Aldís Bára Einarsdóttir, Anna Hallin, Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Brynjar Sigurðarson, Búi Bjarmar Aðalsteinsson, Erna Elínbjörg Skúladóttir, Hanna Dís Whitehead, Hildigunnur Birgisdóttir, Daniel Durnin, Garðar Eyjólfsson, Gunnhildur Helgadóttir, Olga Bergmann, Páll Einarsson, Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir, Sigga Heimis, Sigrún Jóna Norðdahl, Sigurður Guðmundsson, Sigurður Hauksson, Sigurlína Margrét Osuala, Theodóra Alfreðsdóttir og Veronika Sedlmair.

Sýningarstjórn er í höndum hönnunartvíeykisins TOS sem skipað er þeim Hildi Steinþórsdóttur arkitekt og Rúnu Thors vöruhönnuði en hugmynd þeirra að sýningunni var valin úr innsendum tillögum síðastliðið haust þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu í safninu 2016.