Menningargöngur í Hafnarfirði – rölt um listaslóðir

Í sumar er boðið uppá kvöldgöngur í Hafnarfirði með leiðsögn alla fimmtudaga kl. 20. Miðað er við að þær taki um klukkustund og séu við allra hæfi. Þátttaka er ókeypis.

Fimmtudagskvöldið 16. júlí kl. 20 verður gengið um listaslóðir í Hafnarfirði í fylgd Ragnheiðar Gestsdóttur rithöfundar og endað í vinnustofu móður hennar Sigrúnar Guðjónsdóttur, Rúnu.

Gengið verður frá Bókasafni Hafnarfjarðar.

Sumargöngurnar eru samstarf Hafnarborgar, Byggðarsafns, Bókasafns og skrifstofu menningarmála í Hafnarfirði. Göngurnar njóta stuðnings frá Hafnarfjarðarhöfn.