Listamannsspjall – Steingrímur Eyfjörð

Steingrímur Eyfjörð

Listamaðurinn Steingrímur Eyfjörð verður með listamannsspjall sunnudaginn 22. janúar kl. 14. Spjallið er í tengslum við nýopnaða sýningu hans, Kvenhetjan, en þar má sjá úrval verka Steingríms frá upphafi hans ferils til dagsins í dag sem hafa konur eða kvenpersónur að viðfangi. Mörg hver hafa verið sýnd áður en nú gefst tækifæri til að sjá þau á sama stað, þar sem hægt er að kanna sýn Steingríms í þessum verkum og sjá hvernig konur hafa fylgt honum sem viðfangsefni allt frá því snemma á ferlinum.