Listamannaspjall – Ingvar Högni Ragnarsson og Stuart Richardson

Sunnudaginn 28. júní kl. 15 munu Ingvar Högni Ragnarsson og Stuart Richardson ræða við safngesti um verk sín á sýningunni Enginn Staður – íslenskt landslag sem nú stendur yfir í aðalsal Hafnarborgar.

Á sýningunni eru verk átta ljósmyndara sem allir eru búsettir á Íslandi og beina sjónum sínum að íslenskri náttúru. Ásamt Ingvari og Stuart eiga Björn Árnason, Claudia Hausfeld, Daniel Reuter, Edda Fransiska Kjarval, Katrín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen verk á sýningunni. Verkin eru öll unnin á árunum 2008 – 2015.

Sýningarstjórar eru Áslaug Íris Friðjónsdóttir og Unnur Mjöll S. Leifsdóttir.

Ingvar Högni Ragnarsson býr og starfar í Reykjavik og nam við Konunglega listaháksólann í Den Haag og útskrifaðist úr myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2007. Ingvar Högni staðsetur sína listsköpun á milli heimildarmyndagerðar og myndlistar – útgangspunktur hans er oftast nær frá samfélagslegum forsendum en framsetning verka hans blandast við hugsunarhátt myndlistar. Verk hans eru oftast nær mannlaus – sýna landslag / manngert landslag en nærvera mannsins er aldrei langt undan. Verk hans geyma ekki fastmótuð skilaboð eða merkingu heldur fá okkur til að velta fram spurningum um áhrif mannsins á nærumhverfið.

Stuart Richardson ljósmyndari og prentari býr og starfar í Reykjavík. Hann lagði fyrst um sinn stund á rússneska og japanska sögu en snéri sér síðar að ljósmyndun. Hann er sjálflærður að stórum hluta en hefur þó sótt námskeið í International Center of Photography í New York og í Maine Media Workshops. Hann heimsótti Ísland fyrst sumarið 2005, féll fyrir landinu og flutti þangað árið 2008. Árið 2009 opnaði hann Custom Photo Lab. Verk Stuart’s einkennast sterkrki myndbyggingu og fínlegum smáatriðum og formum í náttúrunni sem hann beinir sjónum sínum að.

Nánar um sýninguna hér.