Andlit - fiðla og píanó - Una Sveinbjarnardóttir og Tinna Þorsteinsdóttir
Á efnisskránni eru:
Jórunn Viðar: Íslensk svíta (1974)
Jónas Tómasson: Doloroso (1997)
Mist Þorkelsdóttir: Cesiliana (1990)
Kjartan Ólafsson: Mónetta (1997)
Wolfgang Rihm: Antlitz – teikning fyrir fiðlu og píanó (1992/93)
Áki Ásgeirsson: Nýtt verk (2011) (frumfl.)
Guðmundur Steinn Gunnarsson: Vargarð (2010) (frumfl.)
Páll Ivan Pálsson: Nýtt verk (2011) (frumfl.)
Tinna Þorsteinsdóttir
Tinna Þorsteinsdóttir er aktífur flytjandi í íslensku tónlistarlífi. Árið 2010 frumflutti hún 13 íslensk píanóverk, þ.á.m. verk Magnúsar Blöndal Jóhannssonar Sonorities II frá árinu 1968. Tinna lagði land undir fót á árinu og flutti íslenska píanótónlist víða erlendis, m.a. í Foundling Museum í London og í Hong Kong í The Chinese University. Þeir tónleikar voru hluti af tónleikaferð til Kína, þar sem hún kom fram á Heimssýningunni í Shanghai. Alls flutti Tinna 28 íslensk píanóverk árið 2010 á sjö einleikstónleikum, auk þes að koma fram á fjölda annarra tónleika á Íslandi og erlendis. Þar má nefna jólatónleika S.L.Á.T.U.R sem voru helgaðir píanóinu og tónleika á Listahátíð í Reykjavík þar sem hún tók þátt í Íslandsfrumflutningi Vortex Temporum eftir Gérard Grisey ásamt The Formalist Quartet. www.annit.is.
Una Sveinbjarnardóttir.
Una Sveinbjarnardóttir lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og Konzertexamen gráðu frá Universität der Künste Berlin. Hún stundaði einnig nám við Tónlistarhákólann í Köln, en kennarar hennar voru Thomas Brandis, AlbanBerg strengjakvartettinn og Gorjan Kosuta.
Hún frumflutti hérlendis fiðlukonserta Dmitri Shostakovich nr. 1, Phillip Glass, Kurt Weil, Draumnökkva Atla Heimis Sveinssonar, Fiðlukonsert Högna Egilssonar og Quasi Concerto Sveins Lúðvíks Björnssonar. Una hefur leikið á plötum Bjarkar, Rammstein, Bonnie Prince Billy, Till Brönner, Ane Brun, Mugison og fjölda annarra. Hún kemur reglulega fram á meginlandinu með Ensemble Modern, Jóhanni Jóhannssyni og Bedroom Community.
Una er konsertmeistari Kammersveitar Reykjavíkur og hefur leitt Klassische Philharmonie Bonn, Trondheim Symfoniorkester og hljómsveit Íslensku Óperunnar.
Fiðla Unu er smíðuð af Camillus Camilli í Mantua 1732.
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |